Sundlaugin sem Reykjavíkurborg vanrækir – en borgarbúar elska
Laugardalslaug hefur frá opnun, árið 1968, verið stærsta, fallegasta og vinsælasta sundlaug landsins sem laðar að sér tugi þúsunda gesta árlega, innlenda sem erlenda. Laugardalslaug er ekki bara sundlaug, hún er íþrótta- og almenningsmannvirki sem tengist heilsuræktarstöðinni World Class Laugum og saman mynda þessi tvö fyrirtæki heilsueflingarmiðstöð á heimsmælikvarða.