STEFNUSKRÁ
1. Hælisleitendamál og samningar við Útlendingastofnun
-
Stjórnleysi á landamærum Íslands er á ábyrgð Alþingis - ekki Reykjavíkurborgar.
-
Öllum þjónustusamningum við Útlendingastofnun vegna hælisleitenda verður sagt upp.
-
Borgarstjórn sinnir skyldum sínum gagnvart borgarbúum, enda lögbundin skylda hennar.
2. Hagræðing og ráðningarstopp
-
Ráðningarstopp hjá Reykjavíkurborg þar sem mögulegt er.
-
Ekki ráðið í nýjar stöður nema brýn nauðsyn krefji.
-
Áhersla á skýr markmið í rekstri og aðhaldssemi í öllum deildum borgarinnar.
3. Skipulagsmál
-
Tvö bílastæði með hverri íbúð, annað í bílakjallara og hinu þar sem því er viðkomið.
-
Skipulagi Keldnalands og M22 í Úlfársárdal hafnað og íbúðarfjöldi stjórlega lækkaður.
-
Hröð uppbygging á Geldinganesi með fjölbreyttum húsnæðiskosti og betri búsetutækifærum fyrir fjölskyldufólk.
-
Áhersla verður lögð á lágreista byggð og skýr skilyrði verða um bílakjallara og bílastæði með öllum íbúðum.
4. Samgöngumál
-
Borgarlínu og tilheyrandi vegatollum alfarið hafnað.
-
Samgönguúrbætur fyrir alla ferðamáta og mislæg gatnamót þar sem hægt er.
-
Sundabraut í göngum frá Lauganesi að Geldingarnesi.
-
Reykjavíkurborg haldi áfram rekstri bílastæðahúsa og götustæða með hófstilltu gjaldi.
5. Okurvextir
-
Þrýstingur á ríkisstjórn um breytingu á peningamálastefnu.
-
Alþingi breyti lögum um Seðlabanka, lífeyrissjóði og bankakerfi.
-
Sambærilegir vextir og eru í nágrannalöndum verði tryggðir.
-
Okurvextir kosta samfélagið hundruð milljarða árlega, þessi villimennska verður stöðvuð.
6. Menntamál
-
Samningum um kynjafræðslu í leik- og grunnskólum verður sagt upp og henni hætt.
-
Fornám í íslensku fyrir börn sem ekki tala málið verður á ábyrgð ríkissins.
-
Einkareknir leik- og grunnskólar fá 100% greiðslu líkt og borgarreknir skólar.
7. Meginmarkmið
-
Hagur, lífsgæði og framtíð borgarbúa skulu ávallt vera í forgangi.
-
Setjum borgarbúa í fyrsta sæti - Það er tími til kominn!

