Hinseginfræðsla á ekki heima í leik- og grunnskólum
- Sigfús Aðalsteinsson, Baldur Borgþórsson, Hlynur Áskelsson

- Apr 4
- 2 min read

Þann 25. september síðastliðinn birtist eftirfarandi frétt á vef Reykjavíkurborgar:
„Reykjavíkurborg hefur gert þriggja ára samning við Samtökin ’78. Í honum felst hinsegin fræðsla fyrir starfsfólk í skóla- og frístundastarfi Reykjavíkurborgar, nemendur í 3., 6. og 9. bekk grunnskóla og innan íþróttafélaga borgarinnar.“
Þessi samningur er til þriggja ára og hljóðar upp á peningagreiðslu til Samtakanna ’78 upp á kr. 45 milljónir.
Þá er vert að spyrja?
Er þessi svokallaða „hinsegin fræðsla“ byggði á traustum fræðilegum grunni og studd ritrýndum rannsóknum á sviði uppeldis- og menntamála?
Látum Samtökin ’78 um að svara eftirfarandi spurningu. Svarið er tekið af fræðsluvef Samtakanna ’78 sem kallast „Hinsegin frá A til Ö“ og má finna á vefslóðinni: https://otila.is/
Svar Samtakanna ’78
„Þessi vefsíða er ekki ritrýnd og henni er ekki ætlað að vera fræðilegs eðlis. Hún lýtur því ekki fræðilegum kröfum þegar kemur að heimildanotkun. Þegar við á er vísað í þær heimildir sem byggt var á við gerð textans. Þegar heimilda er ekki getið er það almennt vegna þess að þekkingin liggur enn einkum hjá grasrótinni. Það þýðir að þekkingin ferðast um munnlega, á samfélagsmiðlum, verður til á fundum grasrótarfélaga og svo framvegis. Þetta á til dæmis við um skilgreiningar á hugtökum sem tengjast sjálfsmyndinni. Þessi þekking er mikilvæg og undirstaða allrar fræðilegrar þekkingar.“
1. Spurning:
Er við hæfi að reykvískum, sem og íslenskum, skólabörnum sé boðið sé upp á kennsluefni sem ekki er byggt á neinum fræðilegum grunni?
Svar Okkar Borgar: Nei!
2. Spurning:
Er það góð stjórnsýsla að grasrótarfélög, eins og þau kjósa að kalla sig, fái tugmilljóna styrki til að bera á borð „þekkingu sem ferðast um munnlega, á samfélagsmiðlum og verður til á fundum grasrótarfélaga“?
Svar Okkar Borgar: Nei!
3. Spurning:
Er þessum peningum betur varið?
Svar Okkar Borgar: Já!
4. Spurning:
Er þeim verðmæta og takmarkaða tíma sem börn fá í grunnskóla betur varið?
Svar Okkar Borgar: Já!
Stefna Okkar Borgar er skýr!
Öllum samningum um hinsegin- og kynjafræðslu í leik- og grunnskólum, sem og íþróttafélögum, verður sagt upp og henni hætt.
Telji foreldrar þörf á slíkri þjónustu fyrir sín börn geta þeir leitað hennar hjá þeim samtökum sem hana veita.
Veljum gleði og von – Veljum Okkar Borg – Veljum X-R
Höfundar eru frambjóðendur Okkar Borg X-R




