Kostnaður borgarlínu
- Sigfús og Baldur
- Jan 30
- 2 min read
Updated: Feb 10
Við sem stöndum að framboðinu Okkar Borg teljum að almenningur geri sér ekki alveg grein fyrir þeirri skattlagningu sem er framundan ef Þetta stórslys Borgarlínan heldur áfram. Upplýsingar um þetta mál er að finna á Betri Samgöngur þar sem allt er eðlilega lofsungið sem að þessu snýr.
Þar eru upplýsingar umskattlagninguna sem í þessu verkefni felst og framkvæmd sem verður að eilífu.

Þið vonandi áttið ykkur á að bíllinn ykkar mun borga verkefnið...sem á endanum mun kosta okkur langt yfir 300 milljarða. Ekki bara það heldur er markmiðið að skattleggja bílinn þannig að það verði luxus að keyra götur borgarinnar. Skreppur í Costco gæti kostað Mosfellinginn nokkur þúsund krónur.
Betri samgöngur segja á sinni síðu:
" Umferðargjöld hafa reynst vel til að til að fjármagna stór samgönguverkefni í samstarfi ríkis og sveitarfélaga og ná fram markmiðum um betri, vistvænni og fjölbreyttari borgarsamgöngur.
Gjöldin skapa hvata til að nýta gatna- og vegakerfi og aðra samgönguinnviði betur og fjármagna um leið mikilvægar samgönguúrbætur.
Hver eru markmiðin með gjöldunum?
Að draga úr umferðartöfum og bæta umferðarflæði á höfuðborgarsvæðinu á annatímum.
Að draga úr neikvæðum áhrifum bílaumferðar í formi loft-og hljóðmengunar, umferðartafa og umferðarslysa.
Að stuðla að fjölbreyttari samgönguvalkostum, styðja við breyttar ferðavenjur og hagkvæman vöxt höfuðborgarsvæðisins.
Að flýta framkvæmdum og fjármagna bættar samgöngur á höfuðborgarsvæðinu.
Hverjir þurfa að borga?
Þeir sem aka vegi og götur á milli skýrt afmarkaðra svæða á höfuðborgarsvæðinu munu þurfa að greiða þessi gjöld. Áhersla yrði á svæði þar sem umferð er mikil og gott aðgengi að öðrum samgönguvalkostum.
Hvert fara peningarnir?
Allt það sem yrði innheimt með þessum aðgerðum færi í að greiða fyrir verkefni í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Með sáttmálanum varð mögulegt að gera átak í bættum samgöngum og flýta framkvæmdum á höfuðborgarsvæðinu til 2040."




