top of page
Search

LYGARNAR ERU ALSTAÐAR!


Þegar logið er að fólki þá vill maður leiðrétta lygina. Vísir og Sýn birtu einhverja stjarnfræðilega könnun byggða á annarri könnun sem gerð var 27. febrúar síðastliðinn.

Þarna var um merkilega vinnu að þeirra sögn og niðurstöður kynntar sem merkilegar! Þarna er að ræða kosningaspá Baldurs Héðinssonar stærðfræðings, í samstarfi við fréttastofu Sýnar, Vísis og Bylgjunnar.


Þarna er flokkum raðað eftir því hvernig þeir komu út úr þeirra útreikningum. Okkar Borg er þar með 1,8% "fylgi" sem unnið var af þessum merka hóp.



Umrædd könnun sem gerð var 27. febrúar og Okkar Borg var ekki tekin með þegar hún var framkvæmd.
Umrædd könnun sem gerð var 27. febrúar og Okkar Borg var ekki tekin með þegar hún var framkvæmd.

Nú kemur það!!!

Okkar Borg var ekki með í þessari frægu könnun sem gerð var 27. febrúar.


Okkar Borg hefur ekki fengið að vera með í neinni könnun fyrr en í seinni hluta marsmánaðar!


Það "fylgi" sem þarna er birt er líklega eitthvað sem fólk hefur skrifað inn á sína könnun, við getum ekki skilið þetta öðruvísi!


Hvernig má það vera að Gallup og Maskína höfðu ekki fyrir því að setja Okkar Borg inn í sínar kannanir þrátt fyrir að hafa verið áminnt um Tilvist Okkar Borgar?!


Taka skal fram að Okkar Borg tilkynnti um framboð sitt í október 2025!


En stjórnendur þessara ágætu fyrirtækja vissu bara ekkert af þessu framboði!


Þar sem ég er byrjaður þá skal nefna að barist hefur verið við RÚV um að sitja við sama borð og aðrir en gengið mjög illa.

Bylgjan, Reykjavík síðdegis "gleymdi" Okkar Borg í sinni könnun!


DV hefur ALDREI birt neitt sem við höfum sent þeim, MBL hefur birt EINA frétt og nú hefur verið send ÞRISVAR SINNUM tilkynning á Vísi, en ekkert birt!


Lofið fá Heimir Karls og Lilja í Bítinu, sem tóku okkur opnum örmum.


Hversu subbulegur er þessi bransi?!


Nýtt framboð, án nokkurra styrkja er lamið niður á meðan aðrir og "virtari" framboð á ríkisspenanum njóta sviðsljóssins!


Þvílíkur sori sem er í gangi!


Eitt er klárt, við Okkar Borg losnar enginn og við þökkum öllum þeim sem fylgja okkur og styðja!


Kjósum X-R!

Losum okkur við spillingu!




 
 
bottom of page