Þöggun - Okkar Borg X - R
- Sigfús Aðalsteinsson & Baldur Borgþórsson

- Apr 3
- 3 min read

Okkar Borg er nýtt framboð í Reykjavík og var kynnt til sögunnar í október 2025. Framboðið vakti strax mikla athygli fyrir hnitmiðaða og skýra stefnuskrá sem tekur með mjög afgerandi hætti á mikilvægum málaflokkum sem varða hagsmuni borgarbúa.
- Stefnuskrá sem vekur gleði og von margra en reiði annara
Forsvarsmenn framboðins voru boðaðir í viðtöl hjá fréttastofum Sýn, Rúv og fleiri miðla og var það vel. Meira að segja mbl.is gerði málinu skil 6. október. Reykjavík síðdegis og vísir.is eru með vinsæla könnun á sínum vegum og þar var gerð könnun í byrjun febrúar sem skilaði Okkar Borg 4.sæti með 6,7% fylgi.
Önnur könnun var síðan gerð nú í byrjun mars en viti menn? Okkar Borg var ekki valkostur – Hafði gleymst
Fjórða stærsta framboð í fyrri könnun gleymdist. Auðvitað fyrirgefum við þessi mistök og vitum að við verðum klárlega með í næstu könnun. Mistök geta alltaf átt sér stað, við erum jú öll mannleg.
-Þöggun eða hvað?
En snúum okkur að fyrirtækjum sem beinlínis gera út á það að gera kannanir, eru pró eins og kallað er. Þar er sagan því miður önnur. Maskína framkvæmdi könnun frá 2. febrúar – 27. febrúar og kynnti niðurstöður í liðinni Gallup framkvæmdi könnun frá 5. febrúar – 28. febrúar og kynnti niðurstöður í liðinni viku.
Í hvorugri þessara kannanna var Okkar Borg valkostur – Var ekki höfð með. Þrátt fyrir það er Okkar Borg listuð upp í niðurstöðum beggja – Með 1,2% fylgi hjá báðum.
Það hlýtur að flokkast sem kraftaverk að framboð sem ekki er valkostur í könnun nái 1,2% fylgi. Ekki bara einu sinni heldur tvisvar.
Eða hvað?
Hvernig má það vera að framboð sem kynnt var til sögunnar með pomp og prakt 5. október er ekki með í könnunum?
Þeirri spurningu ætlum við að láta ósvarað en til gamans er hér svar Gallup á Íslandi þar sem spurt var, hvers vegna var Okkar Borg ekki með? Við byggjum allt okkar á trausti 😊
Stefnuskráin ógurlega
En lítum aðeins á stefnuskránna sem vekur slíkan ótta sumra að gripið er til svo grímulausrar þöggunar:
1. Hælisleitendamál
Stjórnleysi á landamærum er á ábyrgð Alþingis, ekki Reykjavíkurborgar.
Þjónustusamningum við ríki og stofnanir vegna hælisleitenda verður sagt upp.
Borgarstjórn setur hag, lífsgæði og framtíð borgarbúa í fyrsta sæti.
2. Hagræðing í rekstri
Ráðningarstopp hjá Reykjavíkurborg.
Ekki ráðið í stöður nema brýn nauðsyn krefji.
Skýr markmið, skilvirkni og aðhald í öllum deildum borgarinnar.
3. Skipulagsmál
Tvö bílastæði með hverri íbúð, annað í bílakjallara þar sem því er viðkomið.
Skipulagi Keldnalands og M22 í Úlfarsárdal hafnað og íbúðafjöldi stórlega lækkaður.
Hröð uppbygging á Geldinganesi með áherslu á fjölskyldubúsetu.
Lágreist byggð í úthverfum og skýr bílastæðaskilyrði alls staðar með 2 stæðum per íbúð.
4. Samgöngumál
Borgarlínu og tilheyrandi vegatollum alfarið hafnað.
Samgönguúrbætur fyrir alla ferðamáta og mislæg gatnamót þar sem hægt er.
Sundabraut í göngum frá Laugarnesi að Geldinganesi.
Mislæg gatnamót Reykjanesbrautar og Bústaðavegar fara í framkvæmd án tafar.
Reykjavíkurborg rekur áfram bílastæðahús og götustæði með hófstilltu gjaldi.
5. Menntamál
Samningum um kynjafræðikennslu í leik- og grunnskólum sagt upp og henni hætt.
Fornám í íslensku fyrir börn sem ekki tala málið á ábyrgð ríkisins.
Einkareknir leik- og grunnskólar fá 100% greiðslu líkt og borgarreknir skólar
6. Okurvextir
Þrýstingur á ríkisstjórn um breytingar á peningastefnu.
Alþingi breyti lögum um Seðlabanka, lífeyrissjóði og bankakerfi.
Sambærilegir vextir og í nágrannalöndum tryggðir.
Okurvextir kosta samfélagið hundruð milljarða árlega. Þessari villimennsku verður að linna.
7. Meginmarkmið
Hagur, lífsgæði og framtíð borgarbúa skulu ávallt vera í forgangi.
Setjum borgarbúa í fyrsta sæti — það er tími til kominn.
--------------------------------------------------
Við spyrjum?
Hvað er að finna í þessari stefnuskrá sem er svo agalegt að sumum finnist réttlætanlegt að grípa til þöggunar?
Aftur ætlum við að láta þeirri spurningu ósvarað en leyfa kjósendum að svara í kjörklefanum þann 16.maí næstkomandi.
Okkar Borg ákvað að bjóða borgarbúum upp á nýjan valkost – Valkost sem brýtur niður veggi hinna hefðbundnu flokka borgarinnar.
Það er okkar eina markmið. – Að gefa borgarbúum raunverulegan valkost breytinga.
Við ætlum því ekki að láta þagga okkur niður heldur halda ótrauð áfram – Með hag, lífsgæði og framtíð borgarbúa að leiðarljósi.
Veljum gleði og von – Veljum Okkar Borg veljum X-R
Höfundar eru frambjóðendur Okkar Borg X-R
Sigfús Aðalsteinsson 1. sæti
Baldur Borgþórsson 2. sæti




