Vilja hætta við Borgarlínu, fækka hælisleitendum og dreifa byggð
- Sigfús Aðalsteinsson

- Feb 13
- 2 min read
Updated: Feb 14
Oddviti Okkar borgar sem býður fram í Reykjavík í vor segir framboðið hægra megin við miðju. Okkar borg vill fækka hælisleitendum, hætta við Borgarlínu og byggja á Geldinganesi.

Okkar borg, sem býður fram í Reykjavík í vor, vill hætta við þéttingu byggðar og segja upp samningum um hælisleitendur. Sigfús Aðalsteinsson, oddviti framboðsins vill að borgin beiti sér fyrir vaxtalækkun.
„Við erum hægri flokkur,“ svarar Sigfús spurður hvar framboðið staðsetji sig á pólitíska ásnum.
Verkefnalistinn er langur og fjölbreyttur
Okkar borg hefur ekki boðið fram áður í Reykjavík og verkefnalistinn er langur:
„Við viljum breyta samgöngumálunum, við viljum breyta menntamálunum eins langt og við getum, við viljum laga þessi leikskólamál og við viljum beita okkur í lækkun vaxta,“ segir Sigfús.
Hvernig gæti kjörinn fulltrúi í borgarstjórn Reykjavíkur beitt sér fyrir lækkun vaxta?„Reykjavíkurborg er stór skuldari og við hljótum að geta lagt áherslur á Alþingi um að taka á þessum málum í eitt skipti fyrir öll.“
En þið hafið ekki fulltrúa á Alþingi. „Nei. En við hljótum, ef við komumst til valda í borginni að einhverju leyti, þá hljótum við að hafa áhrif þangað.“
Vilja segja upp samningum um hælisleitendur
Annað sem framboðið leggur áherslu á er að segja upp samningum Reykjavíkurborgar við ríkið um móttöku hælisleitenda, sem Sigfús segir kosta borgina mikið. „Reykjavíkurborg líður talsvert fyrir að vera komin með mjög stóran hóp af fólki sem er kostnaður fyrir borgina,“ segir hann.
Þú talar um stóran hóp og mikinn kostnað: hvað eru þetta margir og hver er kostnaðurinn? „Samningurinn hljóðaði upp á 1.800 manns á sínum tíma, við það var bætt 300 manns. En það er langt síðan þessar tölur voru gefnar upp og við vitum að þær eru talsvert stærri, við erum að tala um þúsundir.“




